Gleðilegt nýtt ár

hæ hæ

ég vil bara óska öllum gleðilegs nýs árs og vona að nýja árið færi öllum gleði og hamingju.  ég segi bara takk fyrir gamla árið til allra sem ég þekki og ég hlakka til að hitta ykkur á komandi ári.

kær kveðja Bettý


Gleðileg jól

hæ hæ

ég vildi bara óska ykkur Gleðilegra jóla og farsæls komandi árs.  ég veit að ég hef ekki verið beint dugleg við að blogga, enda margt að gera eins og hjá svo mörgum öðrum. allaveganna ég vonast til þess að ég verði duglegri á næsta ári annars hætti ég þessu bara.

 ég vina að allir eigi gleðileg jól aftur

kv, Bettý


Jólafílingur

 

hæ hæ

já ég verð að viðurkenna það að ég er orðin svakalega spennt fyrir jólin,  ég bara get ekki beðið kannski sérstaklega þar sem ég VERÐ EKKI í  neinum prófum fyrir þessi jól og vá hvað ég er glöð Smile.  þetta eru fyrstu jólin í LANGAN tíma sem ég get notið með börnunum mínum, ég bara hef ekki haft nógan tíma fyrir jól frá því ég var barn.  ég er þvílíkt jólabarn og mér finnst æðislegt að föndra, baka, skrifa jólakort og njóta aðventunnar, sitja við kertaljós og setja upp jólaskraut.  ég held mig samt fast við þá reglu að það eigi ekki að spila jólalög fyrr en fyrsta desember og að ég set ekki jólaljós upp fyrr en fyrsta í aðventunni !!! (það ætti líka að vera í búðum landsins, löngu búið að skreyta í öllum búðum) góð regla finnst mér og ég er alveg að halda í mig að byrja ekki núna strax.  RAgnar hefur greinilega erft þetta jólaskap frá mér því hann talar ekki um annað en hvað honum hlakkar til að fara að skreyta jólatréð og svo er hann farinn að æfa jólalögin.  Mamma gaf honum einnig sokk til að setja í gluggann þegar jólasveinarnir koma og hann er stór þannig að hann heldur að hann fái þá meira en í fyrra- spurning hvað jólasveinninn verður örlátur í ár hí hí hí.

allavegnna þá er ég hrikalega spennt fyrir jólunum í ár og því miður þá eru bara allar helgar hjá mér orðnar uppteknar fyrir jól nema næsta helgi- þannig að ég þarf eiginlega að fara að skipuleggja mig hvernig þetta verður svo maður falli ekki á tíma fyrir jólin.  en núna er ekkert stress eins og var í fyrra þegar ég var með KRistjönu nokkurra mánaða og var að taka 4 próf í háskólanum og það síðasta var 21 des, þá var stress--- vá ég gleymi því nú ekki. 

en þið getið bókað það að ég verð búin að setja upp jólaljós og pínu jólaskraut fyrsta í aðventu, þar sem ég er alltaf líka að halda upp á afmælið hans Ragnars, það passar að þegar hann á afmæli þá er alltaf fyrsti í aðventu um það leyti.  en jæja ví ses og látið í ykkur heyra

ciao ciao

Bettý


Grey´s anatomy

 

Jebb hann er byrjaður aftur, loksins.  ég er búin að vera að bíða eftir að þessi þáttaröð byrjaði aftur eftir svakalegan endi á síðustu þáttaröð .  ég byrjaði að horfa á fyrstu seríuna af forvitni og hef ekki verið svikin, þetta er bara snilld.  það er alltaf e-ð svo áhugavert við lækna og ást, ég veit ekki hvað það er, ég hef oft sagt ohh enn einn læknaþátturinn en byrjað að glugga í hann og horfa.   Þetta virðist bara vera fullkomin blanda: læknar og ást.  ég á nú frekar auðvelt með að lifa mig inn í þætti og þessi þáttur er engin undantekning.  Maður fann virkilega til með aðalpersónunni Meredith þegar Derek aka doctor mcdreamy valdi fyrrverandi konuna sína fram yfir hana, það var enn svakalegri endir þegar hún birtist í enda fyrstu seríunnar.  En allaveganna er ég svakalega ánægð með að þetta skuli vera byrjað á ný þannig að ég get hægt að fylgjast með dagskrá stöðvar tvö fram í tímann og athuga hvenær þátturinn byrjar svo ég hungur mitt í þennan þátt verði fullmettað. 

ég hef samt fram að þessu aldrei verið mikið fyrir það að sækja og downloada þætti af netinu og horfa á þáttaraðir á tveimur til þremur dögum.  mér finnst bara skemmtilegra að finna spennuna magnast frá síðasta þætti og fram að næsta til að geta velt mér upp úr hvað gæti gerst og hvað ekki.  ég held að það sé mikill þáttur í að gera þáttaraðir spennandi og skemmtilegar.  ef maður fer að downloada þessu þá er spennan farin og það verður þar með ekki skemmtilegt.  það er allaveganna mín kenning og ábyggilega margir sem eru ekki sammála mér.

allaveganna over and out

kv, Bettý


Fótbolti

hell yeah

langt síðan ég hef spjallað um fótbolta, þetta er ekki hægt.  er held ég bara enn í skýjunum með það að Ítalía vann heimsmeistratitilinn, búin að krækja mér í treyju, fann hana bara á Ítalíu - ekki fáanleg hér á landi.  ekki slæmt það !!!!

en svo er auðvitað boltinn byrjaður að rúlla á ný.  enski, spænski og ítalski.  ég er svona lalala ánægð með árangur minna manna í Englandi.  það er ekki það að þeir vaði ekki í færum í flest öllum leikjum þeir bara hitta oft ekki rammann.  eins og um helgina með bolton, við áttum 15 skot að marki og þeir 3 og skoruðu tvö, come on.  en samt er þetta lið alveg svakalegt- ef þeir skora þá eru allir fyrir aftan miðju línuna og það á sko að halda.  þetta er með betri liðum í þvi enda unnu þeir leikinn.  seinna markið hjá þeim var reyndar ansi flott og ég set spurningarmerki við vörnina í því marki.  svo eru þessar hræringar með uppstillinguna á liðinu, ég skil alveg hvað benitez er að pæla en mér finnst bara vörnin hjá okkur ekki vera að höndla þessar tilfæringar og það að setja Gerrard á kantinn það er ekki að virka.  Gerrard þarf að vera á miðri miðjunni og vera í spilinu en ekki týnast út á kanti þar  sem hann er kannski ekki með í spilinu í lengri tíma.  það gengur bara ekki upp, hann er drifkrafturinn í liðinu og ef hann er ekki  að rífa menn áfram og er að gefa sig allan í leikinn, þá finnst mér bara enginn annar stíga fram í þetta hlutverk- annað hvort þarf að finna annan mann á kantinn eða hafa annan eins og hann.  en það eru bara ekki fótboltamenn eins og hann á hverju strái þannig að þið fattið hvað ég vil.  ég er að vona að bellamy fari að skora, hann á sláarskot, stangarskot út í eitt aumingja maðurinn en hann þarf að setja eitt til að fara í gang.  annars er Crouch funheitur þessa dagana en samt á hann ekki vísan stað í byrjunarliðinu það hlýtur að vera skrítið því á síðasta tímabili var hann ekkert að skora en samt alltaf í byrjunarliðinu !!!! alveg ótrúlegt.  en svona á heildina litið er ég mjög ánægð með hópinn í ár, hann er stór og sterkur og við stefnum langt í ár eins og alltaf og ég vil sjá englandsmeistaratitilinn í okkar skáp á næsta ári.... eins og alltaf, held að við höfum meiri möguleika núna heldur en oft áður.

en sama verður ekki sagt um röndótta liðið mitt á ítalíu, farnir að spila í seríu B, ekki voðalega spennandi en ég er hrikalega ánægð hvað það voru margir sem héldu tryggð við liðið.  mér finnst æðislegt að sjá að menn eru ekki einungis að stjórnast af peningum og græðgi heldur séu enn menn sem eru að spila með hjartanum og vilja gefa allt í liðið sitt (þeir fá reyndar ands.... vel borgað það er ekki það).  En auðvitað vona ég að þeir komist upp úr seríu B og beint á meðal þeirra bestu en það verður hryllilega erfitt sérstaklega þegar þeir eru byrja í mínus.  en..... það verður gaman að sjá hvað verður.

spánn:  ég get ekki gert upp á milli Real og Barcelona.  ég hef bara aldrei getað gert upp á milli þessara liða. Real hefur reyndar ekki verið upp á sitt besta síðustu ár- þrátt fyrir mannskapinn en núna með tilkomu Cappello verður pottþétt breyting þar á.  ég er svakalega hrifin af Cappello og hann er virkilega góður þjálfari og kemur liðinu á meðal þeirra bestu á ný þó þeir hafi nú aldrei farið langt.  hópurinn er góður, margir góðir og reyndar frábærir einstaklingar og gaman að sjá hvernig Cappello fær þá til að spila sem LIÐ- sem hefur alltaf verið helsti vandinn hjá þeim.  það er ekki nóg að vera með góða einstalinga það þarf að fá þá til að spila sem lið.  Barcelona er með svakalega skemmtilegt lið og spila skemmtilegan bolta, alls ekki verra að Eiður sé farin að spila með þeim.  hann er virkilega að sanna hvað hann er svakalega góður.  mér finnst hann ekki spila vel með landsliðinu okkar en hann stendur sig alltaf vel með félagsliðum sínum.   Leikurinn um helgina tók af allan vafa um að hann hafi verið að gera rétt með því að færa sig um set í eina sterkustu deild Evrópu.  margir töldu að hann væri aðeins að fara þangað til að sitja á bekknum og fá að koma inn á í 10 mín hér og 10 mín þar.  sem hefur verið gert fram að helginni en hann sýndi og sannaði hvað hann er svakalegur með frammistöðu sinni á laugardagskvöldið.  ég horfði á leikinn og hann kom mér rosalega á óvart- hann er alveg á réttum stað.   það verður spenna í spænsku deildinni og gaman að fylgjast með framhaldinu. 

manni ætti alls ekki að leiðast í vetur enda er framboðið á bolta svakalegt og ég geri mitt besta til að sjá flesta leikina.  allaveganna alla leikina með mínum liðum- svo er alltaf spurning um fótboltaferð í vetur.  fór í fyrsta skiptið síðasta og vetur og oh my god af hverju var ég ekki löngu farin.  þetta var svakalega gaman.... en það er efni í annað blogg. 

sjáumst gæs and gals. Köben í næstu viku í hhha

over and out

 


Taka á því

já nú ætlaði ég að taka það með stæl og koma mér aldeilis í gott form.  ég sem sagt skráði mig í Bootcamp sem er svona herþjálfun og þar á maður að ná þvílíkum árangri á stuttum tíma.  akkúrat fyrir mig, jæja til að byrja með missti ég af fyrsta tímanum þar sem Ragnar var veikur.  skellti mér svo í annan tímann og viti menn ég var gjörsamlega að deyja eftir 10 mín, ekki er þetta auðvelt sérstaklega þar sem maður hefur ekki verið duglegur í ræktinni í nokkurn tíma. en jæja eftir 25 mín þá varð ég bara að yfirgefa svæðið, ég fékk svima og gat ekki staðið í lappirnar lengur af orkuleysi og ég fór heim og sofnaði í 1 1/2 klst áður en ég gat bara risið upp og farið í sturtu.  en jæja mín var ekki á því að gefast upp og ætlaði aftur í tíma á föstudaginn en nei þá var Kristjana orðin veik.  svo var ég búin að ætla að fara í dag og þá er Ragnar veikur, aftur.  ég fer bara að halda að ég ætti að sleppa þessu, djíses en þetta er svakalegt púl þessir tímar og ég mæli með því að fólk sé allaveganna í smá formi þegar það fer í þetta.  úff, ég held að ég ætti bara að byrja aðeins rólegar svo ég geti nú haldið þessu áfram.  þannig að næsta skref verður ekki eins drastískt á þessum vettvangi.  er þetta ekki týpísk ég.

en allaveganna þá er ég að fara í djamm og skemmtiferð til kóngsins Köben og hitta alla námsmennina í danmörku, það verður svona verslunarmannahittingur hjá okkur úti.  vá mig hlakkar ýkt til að fara og hitta alla í einu aftur.  svolítið langt síðan síðast- en svona er þetta þegar allir vinirnir flytja út í einu.  en það er farið að vanta föt á börnin þannig að það verður fínt að nota tækifærið og missa sig í verslunum í Köben.  ekki leiðinleg dagskrá framundan.  ahhha og svo er náttúrulega afmæli framundan- jebb mín er bara að verða 27 ára.........

heyrumst

Bettý


úff þvílíkt stress

hæ hæ

jæja það er þvílíkt stress í gangi þessa dagana.  ég er sem sagt búin með ÖLL prófin í háskólanum og er að vinna í ritgerðinni og er að vonast til að geta klárað hana núna í spetember þannig að ég geti útskrifast 21. október, vá hvað ég verð fegin ef það tekst.  ég er allaveganna alveg að vinna eins og brjálæðingur þessa dagana í ritgerðinni til að klára hana og vinnan sem hefur farið í hana er orðin óheyrilega sérstaklega þar sem ég var með rannsókn sem tók 3 mánuði.  en þetta er allt að smella saman og þetta er að verða búið !!! vá, aldrei bjóst ég við að fá svona geðveikan námsleiða og ég er svo fegin að geta farið að vinna.  er reyndar ekki mikið búin að vera að leita en er að fara að byrja. 

ég mun sem sagt ekki skrifa mikið þessa dagana en sýnið mér þolinmæði.  það gerist allt þegar ég er búin með ritgerðina.

sjáumst kv, Bettý


LETI og í sjöunda himni

vá hvað maður er svakalega latur að blogga allaveganna.  frá því að við komum heim frá Ítalíu, sem var æðisleg, þá hef ég verið að LÆRA og það í síðasta skipti.  þ.e ég var að taka mín síðustu prófin í háskólanum og ég er svo svakalega glöð.  ég er bara í seventh heaven eins og maður segir á ömurlegri ensku.  Annars er ég sem sagt að fara að klára BA ritgerðina mína og ætla að reyna að skila henni inn í næsta mánuði og útskrifast í október.  þá er ég sem sagt að fara að huga að því að finna vinnu !!!!  ég er að vonast til að ég geti fundið e-ð sem mér líkar við, kominn tími til að fara að gera e-ð skemmtilegra en að læra.  ég er sem sagt komin með svakalegan námsleiða og það fyrir löngu.  úfff,  ég er svo glöð. 

nenni ekki að blogga meira en ég læt af mér vita fljótlega, I promise.  ég ætla sem sagt að klára bjórinn minn og slappa af og láta mér líða vel fyrir framan sjónvarpið.  ég ætla virkilega ekki að gera NEITT í kvöld, njóta þess að vera ekki að læra allaveganna þangað til á morgun þegar ég held áfram með ritgerðina. 

sjáumst og afsakið fyrir hvað ég var lengi að láta í mér heyra

sjáumst

kv, Bettý


Vandræðin á Ítalíu

 

úff þá er loksins fallinn dómur á Ítalíu í fótboltahneykslinu svokallaða.  sem juventina get ég ekki verið rosalega ánægð.  sem fótboltaáhangandi þá er ég mjög sátt við þetta.  Sem Juventina þá hafa engar sannanir komið fram sem sannar að mútur hafi átt sér stað eins og haldið hefur verið fram.  Aðeins hefur komið fram upptaka af samtali Moggi og mannsins sem sá um að raða niður dómurum á leikinn.  En eins og kom fram í fréttablaðinu um helgina þá er þetta frekar dómur yfir ítölsku samfélagi og Juventus er tekið á teppið og látið gjalda fyrir það.   En það væri gaman að lesa yfir dóminn en ekki vera að meta það sem aðrir hafa ritað svo maður skilji um hvað málið raunverulega snýst.  þar sem ég er ítölskumælandi þá væri það svo sem ekki vitlaust en ég veit samt sem áður að þetta eru yfir 150 bls af blaðri um ekkert eins og venja er í lagalegum skilningi og endalaust rugl.

hinsvegar sem fótboltaáhangandi og þar sem ég hef verið sjálf á Ítalíu til lengri tíma hér áður fyrr þá er ég alveg sammála og fylgjandi því að tekið er loksins á spillingunni sem ríkir þarna.  Landið kemst ekkert fram á við og það á það sama við um fótboltann ef menn fara ekki að  taka til í bakgarðinu hjá sér.  Hinsvegar tel ég að þetta sé ekki bundið við aðeins þessi 4 lið heldur sé þetta til staðar hjá öllum liðum og er í öllum deildum.  þetta væl í Intermilan er út í hött að telja að þeir eigi titilinn skilið frá því á síðasta ári, vá en gaman að hirða upp leifarnar eftir aðra.  ekki finnst mér það mikill metnaður.  Annars lá Juventus vel við höggi og þeir eru látnir taka mesta skellinn.  því miður fyrir mitt lið, voru og eru með ansi gott lið.  Sérstaklega Cannavaro þó svo að hann sé alls ekki borin og barnsfæddur Juventus maður.  ég heyrði hinsvegar af því að Del Piero og NEdved ætli að fylgja liðinu niður og það kalla ég hollustu við liðið, svona vill maður sjá og þessum síðustu og verstu að menn eru að spila með hjartanu og hugsa um e-ð annað en bara peninga. 

en jæja þá er maður búin að romsa nóg

fer að koma með update á sápunni minni

kv, Bettý

 


endalokin

hæ hæ

jebb þá er HM 2006, úff hvað var gaman fyrir mig.  Mitt lið vann titilinn og ég var virkilega sátt.  Draumurinn rættist sem sagt, mitt lið vann. ég skal alveg viðurkenna að ég bjóst ekki við þessu, ég var búin að setja mína peninga á Argentínu, sérstaklega eftir riðlakeppnina.  en sem betur fer þá unnu Ítalirnir og LEIKURINN var geðveikur alveg eins og maður vill sjá á endalokum HM.  NEma hvað mörkin hefðu mátt vera fleiri, en ATVIKIÐ sem allir eru að tala um jebb.... the moment slip hjá Zidane.  ég get voðalega lítið bætt við það sem hefur verið sagt nema bara why??? ég er bara enn í sjokki eins og allir aðrir, af hverju gerði maðurinn þetta enda landsliðsferilinn svona.  Nema jú hann hafi viljað fara með bang þá er þetta definetly leiðin !!! úff, maður fór strax að spyrja sig: hvað gerði Materazzi ?? eða hvað sagði hann ?? en hvaða máli skiptir það.  það á ekki að geta réttlætt það sem hann sagði- er ekki alltaf verið að segja manni að ofbeldi leysi engan vanda.  Við ættum ekki að þurfa að vita hvað það var sem hann sagði heldur einbeita sér að verknaðinum, hann réðst á manninn og það efast enginn um það.  er hægt að kenna um að hann hafi misst stjórn á sér !! jú jú en hvað svo...   af því hann var svo góður í fótbolta eigum við þá bara að gleyma þessu ???  það er spurningin sem að ég held að allir velti fyrir sér.  en ég ætla ekki að dæma þetta.  ég ætla frekar að einbeita mér að úrslitum leiksins, jú að Ítalía er heimsmeistari !!!!  þeir voru virkilega góðir að mér fannst, auðvitað voru þeir ekki bestir allan leikinn enda er ekki hægt að ætlast til þess þegar svona sterk lið eru að keppa.  Annars fannst mér Cannavaro, Pirlo og Zambrotta bera af í liði Ítala alla leikina- þeir voru bara langbestir.  ég hef reyndar verið mikill áhangandi Cannavaro frá því ég var á Ítalíu 97.  þannig að ég get ekki verið hlutlaus þegar ég á að meta hann.  allaveganna fannst mér hann langbestur- hann virkilega bar af í liðinu og ekki var leiðinlegt að horfa á hann kyssa titilinn og lyfta honum á loft.  ég verð að segja að ég fékk tár í augun og ég hefði ekki grátið það að vera staðsett á Ítalíu síðasta sunnudag.

allaveganna þá er því miður komið frí frá fótboltanum- allaveganna fram í ágúst og þá verður veisla.  enska deildin byrjar aftur !!!!  svo meistaradeildin og veislan mun bara halda áfram.  get ekki kvartað.  fram að því mun ég halda áfram með BA ritgerðina og svo er ég að fara til Ítalíu með familíunni og hlakka virkilega til.  síðan er RAgnar byrjaður í sumarfríi þannig að ég er með fulla dagskrá alla daga.  nóg að gera á busy heimili- sjáumst.

kv, Bettý

Forza Italia


Næsta síða »

Um bloggið

Bettý bullar

Höfundur

Bettý
Bettý
mikill aðdáandi fótboltans og íþrótta almennt og forfallinn sjónvarpssjúklingur !!!!
Jan. 2012
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.1.): 0
  • Sl. sólarhring: 0
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 170

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband